19.1.2009 | 20:01
Ekki það sama Jón og Séra Jón.
Hefði mætt hefið ég vitað af þessu og stutt krakkan, og ekki með grímu!
Mótmælt fyrir framan dómsmálaráðuneytið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.1.2009 | 19:58
Fiskifræðingar í kreppu.
Valdið er hjá ráðherranum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.1.2009 | 19:12
Hefði örugglega fengið uppsagnarbréf.
Hefði ég ekki verið rekinn frá Gæsluni, með skömm, fyrir um 2 árum síðan, hefði ég örugglega lent í þessu.
Örsök þess að ég var rekinn var sú að. þótt um ríkisfyrirtæki væri að ræða gekk mér illa að fá launin mín greidd út vegna einhvers ruglings og kæruleysis launafulltrúans. Ég var að sjálfsögðu ekki sáttur við að þurfa mánuð eftir mánuð að bíða allt uppí viku eftir laununum mínu og kvartaði mjög kurteislega yfir því, en vegna þess að ég var á tímabundnum samning var auðvelt að losa sig við mig fyrst ég fór að kvarta.
Ekki góðar minningar þaðan, en ég er samt sem áður mjög hryggur yfir því að fyrrum vinnufélagar séu hugsanlega að missa vinnuna.
Uppsagnir hjá Gæslunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.1.2009 | 17:31
Bara köttur á kvennafari.
Köttur í innbrotum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.1.2009 | 14:39
Gott mál.
Uppsetning fjarskiptakerfis á lokastigi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.1.2009 | 14:12
Svoldið froðukennt.
Bjóðast til að greiða skaða Stöðvar 2 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.1.2009 | 15:21
Og er sennilega ekki komið í mestu dýfuna.
Atvinnuleysi 4,8% í desember | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.1.2009 | 19:20
Verður minnisvarði um bruðl.
Annsi er ég hræddur um að þessi kumbaldi eigi eftir að skemma umhverfið við höfnina og miðbæinn ókominn ár, vegna þess að ekki verða til peningar til að klára það.
Enda hvað höfum við með rándýrt tónlistarhús að gera þegar við höfum varla efni á að fara í bíó
Reynt að leysa mál Tónlistarhúss | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.1.2009 | 01:43
Vítamínssprauta fyrir Suðurnesin.
Þarna hljóta að skapast hundruð nýrra starfa, bæði við byggingu áversins, og svo við framleiðslu. Þetta eru gleðilegar fréttir fyrir suðurnesjamenn, sem meir að segja en stunda sjóinn fast.
Það þarf örugglega ekki að taka það fram hversu góðar fréttir þetta eru á kreppu tímum þegar auka þarf framleiðslu og útflutning. Auk þess skapar þetta en meiri fjölbreytni í atvinnulífið.
Mig langar líka að benda á að hér í Snæfellsbæ er verið að byggja vatnsátöppunarverksmiðju sem líka er stóriðja sem skapar fjölda starfa hér á svæðinu.
Helguvík í gang 2011 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.1.2009 | 14:31
Skora á mótmælendur
Það að ætla sér að hafa 8 ára gamalt barn á mælendaskrá, er með ólíkindum heimskulegt. Það fyrsta sem mér dettur í hug eru skæruliðar sem nota konur og börn sem lifandi skildi. Ég skora því á mótmælendur að taka þetta til endurskoðunar.
Það er með ólíkindum hvað maður er búinn að upplifa og horfa uppá undafarna mánuði og misseri. Að hópur fólks skuli komast upp með eignaspjöll og skrílslæti í nafni mótmæla, og eins og ég og fleiri hér á blog.is, höfum mátt þola, að ef við svo mikið sem látum í ljós að okkur sé þetta ekki að skapi, því þetta sé orðið svo heimskulegt, og tilgangslaust. Þá fáum við þvílíkar formælingar, svífvirrðingar og hroða yfir okkur, að maður veltir fyrir sér hvort fólk sé ekki orðið mennskt.
Margt af þeim sem láta hvað hæðst, og fara um með spjöllum, og formælingum í garð þeirra sem eitthvað vilja, að fólk taki sér tak og fari að slaka aðeins á í látunum, er fólk sem vaðið hefur uppi um fjöll og fyrnindi undanfarin 2-3 ár að mótmæla virkjunum og stóiðjuuppbyggingu, með eignaspjöllum og frekju. Í sjálfu sér er ekkert útá Raddir fólksins að setja, nema þetta með barnið, ef ekki væri eins og þessi hópur, eða hópar væru ekki að verða andlit fylkingarinar útávið. Fólk á svo sannarlega rétt á að mótmæla hvar í flokki sem það stendur, og fær það hvort sem það er í Sjálfstæðisflokknum eða Samfylkingu. En um leið og mótmæli fara að leysast uppí eignaspjöll og ofbeldi, eins og við sáum svo eftirminnilega á Gamlársdag, þá er málstaðurinn dauður!
Mótmælaróður hertur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |