Engin markmið lengur?

Venjulega hefur eitthvað markmið verið á bakvið fundina, en þessi virðist bara vera markmiðalaus. Þessir fundir skiluðu reyndar nýrri ríkisstjórn af sér, en hvað hefur breyst?? Það er ekkert markvert að gerast og stóru orðin eins og skjaldborg um heimili, eru ekki aað ganga eftir því nú eru lánastofnanir farnar að hrekja fólk úr fasteignum sínum af mikilli hörku vegna vanskila. Var þetta bara ekki alltsaman plott Vinstri Græna til að fá nú loksins valdastóla?????
mbl.is 20. útifundurinn á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákveðin menning að líða undir lok.

Kaupfélögin og fólkið sem í þeim starfaði var stór kapituli í sögu síðustu aldar. Bæði í Stykkishólmi og í Reykhólasveit þar sem ég ólst upp voru starfandi Kaupfélög, og annað þeirra Kaupfélag Króksfjarðar í Reykhólasveit er að ég held starfandi en, með verslun í Króksfjarðarnesi og útibú á Reykhólum. Kaupfélag Stykkishólms varð aftá móti gjaldþrota 1986. Ég vann þar sem bílstjóri síðasta árið og svo árið sem Kaupfélagið í Búaðrdal rak verslanir Kaupfélags Stykkishólms. Kaupfélagið í Stykkishólmi lokaði matvörubúðini um áramót 1987-88, og seldi Skipavík hf byggingavöruverslunina sumarið eftir að mig minnir. Í húsi Kaupfélags Stykkishólms er nú glæsilegt ráðhús Stykkishólmsbæjar.
mbl.is 50 ár í kaupfélaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tók hann þá ekki virkan þátt í þensluni.

Það er furðuleg staðhæfing hjá þingmanni að viskiptalíf (brask) samræmist þingmensku. Það hlýtur alltaf að koma til árekstra, ekki síst við samvisku sína. Mér finnst að hann hefði átt að velja á milli og það sama ætti að gilda um aðra þingmenn í sömu stöðu og hann. Þó að í gegn um tíðina hafi þingmenn verið í svipaðri stöðu, þá hafa aðstæður síðustu 10-15 árin verið mun öðruvísi en á fyrrum og siðferðið allt annað í stjórnmálum. Í þenslu og með puttana á púlsinum er ekki auðvelt að standast freistingar.
mbl.is Fjármál Lúðvíks komu í veg fyrir ráðherrastól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfileg staðreynd.

Eftir 18 ára setu Sjáfstæðisflokksins í ríkisstjórn, eyjum við algert vonleysi framundan. Fólk orðið atvinnulaust með himin háar skuldir á bakinu, á meðan þeir sem ábyrgð á þessu bera ganga lausir. Eitthvað sem hefði orðið að segja mér oftar en tvisvar fyrir eins og fjórum árum síðan er að ganga yfir okkur.
mbl.is 13.280 á atvinnuleysisskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sea Shepherd en að trufla hvalveiðar

Það er með ólíkindum hvað Paul Watson og félagar í Sea Shepherd ætla að halda út baráttu sinni gegn hvalveiðum. Ef mig misminnir ekki þá eru komin rúm 22 ár síðan liðsmenn hans laumuðust hingað til lands og sökktu tveim aflóga hvalbátum sem var eiginlega þegar búið að leggja, og töldu sig hafa unnið mikið afrek í baráttu gegn hvalveiðum. En furðulegra er að hann skuli en fá peninga til að halda þessu úti.

Ein skipsfélaga minna á Friðriki Sigurðssyni sagði mér þá sögu í sumar, að fyrir nokkrum árum var hann á systurskipi Engeyjar RE 1 (sem var í eigu Granda þar til fyrir nokkru síðan), á veiðum við Alaska. Þá lenti hann í návígi við Greenpece, og þótti ekki mikið koma til aðferða þeirra. Þeir komu að togaranum á tveim slöngubátum og annar bátanana hélt sig í öruggri fjarlægð, en hinn fór uppað skut togarans, þar sem þeir voru að hífa inn trollið. Sá bátur var mannaður unglingum á bilinu 18-20 ára gömlum. Krakkarnir reyndu að hanga í trollinu og rífa það meðan þeir voru að koma því inn, en höfðu ekki erindi sem erfiði. Þeir á togaranum gátu náttulega ekki stillt sig um að bleyta aðeins í þeim og smúluð aðeins á liðið. Þegar að trollið var svo komið inn stóð til að færa sig til á veiðislóðini og skipstjórinn setti á ferð, en tók ekki eftir því að bátur krakkana var alveg við skutinn. Við þetta festist hann í skrúfuvatninu og hringsnérist með gríslingana innanborðs öskrandi af hræðslu og saup inná sig sjó og hálffyllti. Það steindrapst á mótornum, og eftir að hafa látið þetta aðeins viðgangast nokkur andartök kallaði félagi minn sem var þarna dekkformaður uppí brú og lét skipstjóran vita hvað væri að gerast. Hann sló þá umsvifalaust af og báturinn losnað frá fullur af sjó, og með ofsahrædda unglinga innanborðs. Hinn slöngubáturinn kom þá loksins og dró þann fulla frá togaranum. Þá sá félagi minn það að í þeim bát vöru forsprakkarnir með mikil myndavélabúnað, til að ná sem bestum myndum af átökunum, sem í sjálfum sér engin voru. Félaga mínum fannst þetta frekar low vinnubrögð að beita svona unglingum sem ekkert vissu greinilega hvað þau voru að gera og hefði getað endað mjög illa hjá. Hann missti allt álit á Greenpece eftir þetta og ekki síst eftir að samtökin gáfu út fréttatilkynningu þess efnis að þeir hefðu stöðvað veiðar þessa verksmiðjutogara við Alaska, sem náttulega ekki var rétt.

Svona er nú áróðursstríðið heiðarlegt.


mbl.is Sea Shepherd í átökum við hvalveiðimenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru skýringar á því.

Tilfellið er nú svo að kreppan kemur af minni þunga niður á landsbyggðini en höfuðborgarsvæðinu. Ef tala má um kreppu á landsbyggðini þá skall hún á fyrir löngu síðan og ekki fóru 101ribbaldar á Austurvöll með egg, skyr og gangstéttarhellur. Ó nei, það er ekki fyrren nú þegar sukkið er að leggja landið endanlega í eyði sem fólk á höfuðborgarsvæðinu vaknar til lífssins og gengur berserksgang í mótmælum. Ekki sá maður forsvarsmann Radda fólksins boða til mómæla þegar landsbyggðin þurfti að taka á 30% afkomuskerðinu ofaná mikil samdrátt og óheillasamar breytingar, sem ekki voru heilu byggðarlögunum til góðs. Ekki komu fram raddir fólksins, eða nokkur mótmæli þegar atvinnulíf á Flateyri varð fyrir miklu áfalli fyrir tæpum 2 árum síðan. Höfuðorsökin í þeim harmleik var stjónkerfi sem búið var til af þeim sjónmálamönnum sem nú eru við völd. Því hefur ekki verið mótmælt á Austurvelli síðan trillukarlar landsins tóku sig til og skunduðu í höfuðborgina til að mótmæla friðsamlega þeim áformum þáverandi valdhafa að gera eigur þeirra og afkomu að engu. Því er ekkert skrítið þó landsbyggðarfólk hafi meiri þolinmæði en 101 íbúarnir, við erum búin að láta valtra yfir okkur árum saman í nafni hagræðingar, og hvert er sú hagræðing að leiða okkur. Höfuðatvinnuvegur okkar skuldar á fimmtahundrað milljarða.
mbl.is Meiri biðlund á landsbyggðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árna Johnsen ekki spurning.

Maður með reynslu af hremmingum og hefur fengið uppreisn æru.
mbl.is Fjórir þingmenn aðallega nefndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæti endað illa.

Ætli það sé nú svo komið að fólk fari að etja sér hvort gegn öðru.
mbl.is Mótmæli gegn ofbeldi og eignaspjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átökin verða ofbeldifyllri með hverjum degi.

Aldrei hefði ég getað ímyndað mér að á Íslandi myndu skapast þær aðstæður sem nú eru raunveruleikinn. Það eru bara um 5 ár síðan allir voru kátir og glaðir, í sem dæmi fasteignakaupahugleiðingum, enda bankarnir sem þá voru einkabankar nota bene, með nóg af peningum og kepptust við að bjóða fólki að kaupa á 100% láni og helst bíla- og húsbílalán með. Útrásin svokallaða var að skila okkur þúsundum milljarða, og ekkert lát myndi verða á þessu.

En svo kom nú víst að því síðast liðið haust eftir reyndar mikla samdráttarsveiflu, að þetta var bara ekki svona einfalt, og útrásin bara ein risastór blekking, og þeir einu sm högnuðust á þessu voru óprúttnir banka-og fjármagnssukkarar.

Ofbeldi á ekki nokkurn rétt á sér, hverjar sem aðstæður eru, en það er þó skiljanlegt að fólk sé mjög reitt eftir þann blekkingarvef sem það og þjóðin er flækt í. Orsök þessa óábyrgða sukks nokkra óvandaða bankamann kemur nú að fullum þunga á fólkið í myndum atvinnumissis og svimandi hárra skulda sem fara hækkandi með hverjum degi, hversu mikið sem borgað er af þeim. Á meðan þessu framvindur ganga þessir ólánssömu banka-og fjámálasukkara lausir og sumir voru jafnvel í vinnu í bönkunum eftir hrunið eins og ekkert hafi í skorist. Mönnum hefur verið stungið í gæsluvarðhald af minna tilefni en þetta. Formaður Félags fjárfesta talaði á Bylgjuni í gærmorgunn um landráð, og í öðrum löndum væri grunur um landráð nóg til að stinga mönnum inn í steininn þangað til annað sannast.

En á meðan höfuðsökudólgarnir ganga lausir blæðir fólki og lögreglumönnum, og átök á borð við það sem við höfum verið að horfa uppá frá því á Gamlársdag stigmagnast, og á endanum lætur einhver lífið. Ríkisstjórnin er ráðalaus, og veit ekkkert hvað skal til bragðs taka. Forsætisráðherra fer að fara með veggjum af hræðslu við skrílinn, og þorir ekki einusinni að horfast í augu við sívaxandi kröfu fólksins um kosningar, af ótta við að lenda á vergangi með öllum hinum.

Kannski erum við bara að horfa á toppinn af því sem á eftir að koma, og enginn virðist ætla að vera dreginn til ábyrgðar, og allra síst þeir sem afsökuðu óraunverulega há laun sín með mikili ábyrgð! 


mbl.is Tveir lögreglumenn slasaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Like a rolling stone.

Wanted dead or alive.
mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband