17.2.2010 | 16:08
Ekki fyrir viðkvæmar sálir
Vodafone hættir sölu á erótísku myndefni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.9.2009 | 11:32
Ekki til umræðu.
Það er furðulegt en og aftur að heyra umræðu um afnám sjómannaafsláttar komna af stað aftur. Í upphafi var þetta kannski hugsuð sem gulrót til að manna fiskiskipaflota sem var barn síns tíma, en í dag lít ég meira á þetta sem uppbót, á langar fjarvistir sjómanna frá heimilum sínum og fjölskyldum.
Annað mætti líka gera, þ.e. taka upp skatta aflsátt fyrir landsbyggðina, því þrátt fyrir kreppu hefur verið sem dæmi erfitt að manna kennarastöður víða útá landi sérstaklega á þeim stöðum sem lengst eru frá höfuðborgarsvæðinu.
Tvöföld varðstaða um sjómannaafslátt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2009 | 12:46
Hef heyrt þessa sögu áður
Átök njósnara á Íslandi 1944 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.8.2009 | 12:17
Þetta þarf að koma uppá borðið fyrir almennings sjónir
Þetta er ótrúlegt. Ég man þá tíð þegar þessi maður talaði um trillukarla sem ábyrgðarlausa menn sem tækju eða stælu frá öðrum, bara vegna þess að þeir vildu tryggja sér og sínum mannsæmandi afkomu. Þessi sægreifi kom í fjölmiðla vikum saman og skrifaði margar greinar í blöð um þessa ósvífnu menn sem voguðu sér að biðja um meira, þó þeir væru að fiska svo miklu meira en þeim var ætlað og ekki var það nú mikið.
En hann og félagar hans höfðu sitt í gegn og niðustaðan varð algert hrun í sjávrplássum landsins, sérstaklega þar sem smábáta útgerð átti sér langa hefð, eins og á Vestfjörðum. Það var loksins aftur í sumar smá lífsglæta þegar strandveiðrnar voru í hámarki.
Gamli Landsbankinn afskrifar skuldir Magnúsar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.8.2009 | 12:05
Bolabrögð
Hattinum stolið af Hallgrími | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.8.2009 | 15:50
Bara hreint út sagt frábært.
Ísland stendur upp úr dræmu ferðasumri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.8.2009 | 13:57
En hverjir krefjast lausnargjalds fyrir timburfarm.
Artcic Sea málið er að verða hið dularfyllsta. Fyrst er ráðist um borð í það á Eystrasalti og áhöfnin tekin höndum. Henni er síðan sleppt og uppgönuliðið lætur sig hverfa frá borði. Síðan hverfur það á Ermasundi, sem er nú einfalt mál, því nóg er að slökkva á öllum ferillvöktunartækjum og læðast útúr sundinu. Enginn þekkir auðkennalaust skip í myrkri á radar. Þegar verður svo loksins vart við skipið undan Grænhöfðaeyjum, virðist sem aftur séu komnir óboðnir gestir um borð, og krefjast lausnargjalds fyrir skip sem samkvæmt pappírum flytur timbur.
Svo spurningin er: Hverjir fórum um borð á Ermasundi og hvaðan komu þeir. Og er kannski farmur skipsins einhver annar en timbur??
Neita orðrómi um farm Arctic Sea | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.8.2009 | 10:34
Hafa skal það sem hentar best
Er ekki orðið tímabært að fara að stöðva Saving Iceland. Þessi yfirlýsing þeirra í garð lögreglu er farin að minna um of á hugsana hátt fastakúna lögreglunar, á þann veg að þeir eru saklausir hvað sem þeir gera en löggan er sek um allt annað.
Saving Iceland gerir ekkert annað en sýna landi og þjóð óvirðingu.
Saving Iceland: Rógburður lögreglu og lygar fjölmiðla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.8.2009 | 02:09
Á móti atvinnusköpun.
En eitt sumarið ætla furðufuglarnir í Saving Iceland að vera með læti á almannafæri til að mótmæla atvinnusköpun á svæði eins og á Reykjanesinu þar sem atvinnleysi er mikið.
Það er réttur hvers manns að hafa atvinnu, (ef hann nennir því) og nær væri þessu liði að fagna því að sá réttur haldist. Það er ekkert eins sálardrepandi og að vera atvinnulaus og hafa ekkert fyrir stafni annað en vonleysi og frekari þjáningar.
Svo er náttulega verið að binda fámennt lið lögreglunar frá frekari og jafnvel brýni störfum á föstudagskvöldi.
Mótmælendur handteknir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.7.2009 | 21:51